Útsendari kínverskra stjórnvalda reynir að hafa uppi á viðkvæmum upplýsingum sem Stella hefur undir höndum og reynist hið mesta illmenni. Stellu er stillt upp við vegg en örlögin taka í taumana í stórum kvöldverði í Hörpunni og í kjölfarið þarf Stella að beita öllum brögðum til að bjarga sjálfri sér frá aftökusveit í myrkviðum Kína.